Þegar bókmenntahöfundar uppgötva furðusögur
Ég var nýverið á bókasafninu í Valby þegar ég kom auga á Macines like Me á dönsku. Mér fannst sérstakt að sjá þýðinguna. Bókin var ekki skrifuð í samtali við bókmenntahefð sína, þvert á móti með fyrirlitningu á henni.
Þegar rótgrónir bókmenntahöfundar skrifa furðusögur þykjast sumir þeirra vera að kanna áður óþekkt þemu. Nokkuð sem kemur kjánalega fyrir sjónir, því hugmyndirnar eru ekki bara þekktar heldur áratuga gamlar.
McEwan er gott dæmi um þetta. Í Machines Like Me skrifaði hann um gervigreind, meðvitund, siðferði og mörkin milli manns og vélar. Allt áhugaverð viðfangsefni en alls ekki ný af nálinni. Margir höfundar hafa fjallað um þau, til dæmis Mary Shelley í Frankenstein, Isaac Asimov í I, Robot, Philip K. Dick í Do Androids Dream of Electric Sheep og Stanisław Lem í Solaris. Þarna eru ekki neinar jaðarbókmenntir á ferð, heldur klassísk verk úr ríkri bókmenntahefð furðusagna.
McEwan hefur talað um vísindaskáldskap með fjarlægð og að mínu mati fyrirlitningu. Hann segist hafa meiri áhuga á hinu mannlega og siðferðislega en geimskipum og geislabyssum. Í því felst ákveðin mótsögn. Vísindaskáldskapur hefur aldrei snúist um þetta tvennt (þó það sé vissulega í mörgum sögum). Furðusögur fjalla oft um það sem McEwan taldi sig vera að finna upp: mannlegt eðli, samfélög, siðferði eða framtíð okkar allra.
Viðtökur Machines Like Me voru líka sérstakar. McEwan var vinsæll innan bókmenntaheimsins eftir bækur líkt og Atonement. Bókin var því kynnt sem könnun á nýjum hugmyndum, sem var rangt. En af hverju var Machines Like Me auglýst svona mikið og þýdd á fjölmörg tungumál? Er það vegna þess að McEwan er McEwan? Hefði óþekktur furðusagnahöfundur fengið álíka athygli fyrir sömu bók? Ég held að svarið sé augljóst.
Bókmenntahöfundar eiga þó ekki að halda sig frá furðusögum. Þvert á móti. Kazuo Ishiguro, Marlon James og Haruki Murakami hafa allir skrifað framúrskarandi bókmenntir innan greinarinnar, án þess að afsaka áhugann á henni. Þeir virðast líta á furðusögur sem lifandi bókmenntahefð sem þeir eru hluti af.
Vandinn er því ekki að McEwan hafi skrifað vísindaskáldskap, heldur afstaða hans gagnvart bókmenntaarfinum sem hann sækir í. Það er sérkennilegt að „uppgötva“ bókmenntagrein án þess að gefa fyrirrennurum sínum gaum. Hið jákvæða í þessu er að furðusagnasamfélagið hafnaði Machines Like Me og bókmenntagagnrýnendur voru á sama máli.
Kannski er það niðurstaðan: furðusögur verða ekki „alvöru bókmenntir“ í höndum bókmenntahöfunda, þær hafa alltaf verið það.

Comments
Post a Comment