Posts

Showing posts from November, 2023

Logan’s Run – George Clayton Johnson & William F Nolan

Image
Um aldamótin fór ég iðulega yfir sjónvarpsdagsskrár í leit að óuppgötvuðum furðusagnamolum á borð við Logan‘s Run (1976). Hana horfði ég á seint eitthvert kvöld á TCM og varð allt of þreyttur daginn eftir. Myndin er barn síns tíma og því hallærisleg en jafnframt sjarmerandi. Til að mynda er sena við upphaf myndarinnar sem mér þótti kjánaleg á sínum tíma. Í henni flýgur fólk upp í loft og springur svo eins og flugeldar. Þetta atriði sat samt í mér eftir á og myndin er stútfull af eftirminnilegum senum.  Það var svo nánast tveimur áratugum seinna að ég rakst á myndband á YouTube* um kvikmyndina og bókina sem hún var byggð á. Bókin var skrifuð af tveimur mönnum, þeim William F Nolan og George Clayton Johnson. Þeir höfðu báðir verið að skrifa í einhver ár. Johnson hafði  náð nokkrum frama við handritaskrif fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Meðal annars var hann handritshöfundur Ocean‘s Eleven (1960) sem var eftirminnilega endurgerð 2001 .    Á sjöunda áratugnum ákváðu vinir...