Bestu vísindasmássögur allra tíma: Inconstant Moon
Inconstant Moon eftir Larry Niven kom út árið 1971 í smásagnasafninu All the Myriad Ways. Titillinn er tilvitnun í Rómeó og Júlíu. Í öðrum þætti leikritsins segir Júlía: „O, swear not by the moon, th' inconstant moon“ sem var þýtt á Íslensku sem „sver ei við tunglið, tunglið er svo hverfult“. Íslensk þýðing titilsins gæti því verið Hverfult tungl en sagan hefur aldrei verið þýdd. Eins og mikið af smásögum þá er hún aðgengileg á netinu; á pdf formi og hjá Storytel (ég fann enga útgáfu á YouTube). Sagan segir Stan sem býr í Los Angeles. Hann er að vinna seint eitt kvöld en þegar honum er litði út um gluggann. Á þeirri stundu er tunglið óeðlilega bjart svo bjart að hann verður að ræða það við einhvern. Hann hringir í kærustu sína sem er sammála honum um að tunglið sé undarlegt. Þau ákveða að hittast en það sem gerist svo gætu sumir talið vera spilli, þannig að ekki lesa lengra ef þið viljið upplifa söguna án nokkurra upplýsinga um það sem gerist. Stan vinnur hjá vísinda...