Bestu vísindasmásögur allra tíma: Nightwings
Fyrst birt 25/08/2022 Ég hlustaði nýlega á nóvelluna Nightwings eftir Robert Silverberg. Hún er í grunninn ævintýri sem er sett í vísindasagna búning með álfum um umbreytingum (e. shapeshifters). Sú útgáfa sem ég las var skáldsagan Nightwings sem er samsett úr þremur nóvellum; Nightwings (1968), Perris Way (1968) og To Jorslem (1969). Sögurnar þrjár mynda eina heild þó augljóst sé hvar ein endar og sú næsta byrjar. Fyrsta sagan, Nightwings, fjallar um ferð þriggja einstaklinga til Rómar (Rum/Rúmar), samskipti þeirra og stöðu í samfélaginu. Sögursviðið er fjarlægð framtíð þar sem hnignun mannkyns hefur átt sér stað. Þetta er þó langt því að vera eins og í Mad Max . Í staðinn ferðast lesandinn til eins konar miðaldarsamfélgas sem er litað af framtíðartækni. Persónur eru settar í stéttir sem skilgreina hlutverk þeirra og stöðu í samfélaginu. Aðalsöguhetjan er sjáandi en hlutverk þeirra er að fylgist með himnunum í leit að vísbendingum fyrir væntanlega geimveruinnrás. Annar ferðalangu...