Posts

Showing posts from November, 2026

Þegar bókmenntahöfundar uppgötva furðusögur

Image
 Ég var nýverið á bókasafninu í Valby þegar ég kom auga á Macines like Me á dönsku. Mér fannst sérstakt að sjá þýðinguna. Bókin var ekki skrifuð í samtali við bókmenntahefð sína, þvert á móti með fyrirlitningu á henni.  Þegar rótgrónir bókmenntahöfundar skrifa furðusögur þykjast sumir þeirra vera að kanna áður óþekkt þemu. Nokkuð sem kemur kjánalega fyrir sjónir, því hugmyndirnar eru ekki bara þekktar heldur áratuga gamlar.  McEwan er gott dæmi um þetta. Í Machines Like Me skrifaði hann um gervigreind, meðvitund, siðferði og mörkin milli manns og vélar. Allt áhugaverð viðfangsefni en alls ekki ný af nálinni. Margir höfundar hafa fjallað um þau, til dæmis Mary Shelley í Frankenstein, Isaac Asimov í I, Robot, Philip K. Dick í Do Androids Dream of Electric Sheep og Stanisław Lem í Solaris. Þarna eru ekki neinar jaðarbókmenntir á ferð, heldur klassísk verk úr ríkri bókmenntahefð furðusagna. McEwan hefur talað um vísindaskáldskap með fjarlægð og að mínu mati fyrirlitningu. Han...