Logan’s Run – George Clayton Johnson & William F Nolan


Um aldamótin fór ég iðulega yfir sjónvarpsdagsskrár í leit að óuppgötvuðum furðusagnamolum á borð við Logan‘s Run (1976). Hana horfði ég á seint eitthvert kvöld á TCM og varð allt of þreyttur daginn eftir. Myndin er barn síns tíma og því hallærisleg en jafnframt sjarmerandi. Til að mynda er sena við upphaf myndarinnar sem mér þótti kjánaleg á sínum tíma. Í henni flýgur fólk upp í loft og springur svo eins og flugeldar. Þetta atriði sat samt í mér eftir á og myndin er stútfull af eftirminnilegum senum. 

Það var svo nánast tveimur áratugum seinna að ég rakst á myndband á YouTube* um kvikmyndina og bókina sem hún var byggð á. Bókin var skrifuð af tveimur mönnum, þeim William F Nolan og George Clayton Johnson. Þeir höfðu báðir verið að skrifa í einhver ár. Johnson hafði  náð nokkrum frama við handritaskrif fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Meðal annars var hann handritshöfundur Ocean‘s Eleven (1960) sem var eftirminnilega endurgerð 2001.   

Á sjöunda áratugnum ákváðu vinirnir tveir að skrifa saman bók. Þeir settu saman lista af efnisatriðum sem voru í metsölubókum. Síðan reyndu þeir að koma eins mörgum af atriðunum og mögulegt var inn í söguna. Þeim langaði líka að skrifa bók þar sem einstaklingurinn tekst á við samfélagið, líkt og í Fahrenheit 451 eftir Bradbury og 1984 eftir Orwell. Allt þetta var sett saman í pott og úr varð Logan‘s Run. 

Sagan fjallar um Logan 3. Hann er löggæslumaður í framtíðarsamfélagi ungra. Hámarks aldur er 21 árs en þá fórna þegnarnir sér í trú um að þeir fæðist á ný. Þegar Logan nær þessum aldri leggur hann á flótta með Jessicu 6. Á leiðinni fara þau frá einu undralandi til annars án þess að staldra lengi við á hvejrum stað. Þetta er akkúrat akkilesarhæll sögunnar. Bókin er stutt en lesandinn fær aldrei tíma til að melta það sem er að gerast. Söguþráðurinn áfram frá einum stað til annars eins og höfundunum hafi legið á að koma eins mörgum hugmyndum á blað og mögulegt var. Sagan er því  ólík bókunum sem hún vildi líkjast en bæði 1984 og Fahrenheit 451 gefa sér góðan tíma til að þróa söguhetjur og sýna samfélög þeirra. 

Að mínu mati er bíómyndin betri en bókinni. Jafnvel þótt að hámarks aldur framtíðarsamfélagsins hafi verið færður upp í 31 árs. Þetta var nokkur sem höfundarnir mómæltu mjög enda talsverður munur á samfélagi táninga og fólks á þrítugsaldri. Kvikmyndaverið tók samt ekki mark á mótmælunum enda vildu framleiðendurnir fá þekkta leikara í aðalhlutverkin. Þetta er þó langt frá því að vera eina breytingin á sögunni en ég er samt á því að bíómyndin, sem er mjög ólík bókinni, sé sterkari saga. 

Kvikmyndin var þó ekki eina aðlögunin af sögunni. Gerðir voru sjónvarpsþættir árið 1978, hið minnsta tvær grafískar skáldsögur og svo má lengi telja hliðar aðlaganir eins og kvikmyndatónlist úr framhaldsmynd sem var aldrei gerð. William F Nolan skrifaði svo tvær framhaldsbækur en hvorug náði sömu hæðum og Logan‘s Run. Þá má einnig sjá augljós áhrif frá Logan‘s Run í bíómyndinni The Island (2005).  Lengi hefur verið talað um að aðlaga bókina upp aftur en aldrei hefur orðið af því. 

Logan‘s Run er því áhrifarík en gölluð saga. Hún er stutt og ef einhverjum hefur alltaf langað til að lesa hana þá er um að gera. Ég mæli þó ekki með að aðrir leiti bókina upp þar sem hún er ekki nógu góð að mínu mati.


*Ég er búinn að leita en get með engu móti fundið myndbandið

Comments

Popular posts from this blog

Bestu vísindasmásögur allra tíma: A Rose for Ecclesiastes

The Demon-Haunted World